Golfferð

Þá styttist óðum í rjúpnaferð 2007 sem að þessu sinni er til Liverpool. Á fimmtudaginn síðdegis verður haldi suður yfir heiðar og síðan er mæting í Leifsstöð kl. 14.10 á föstudaginn og lent í Manchester um kvöldmatarleitið það er án efa eini gallinn við þessa ferð að þurfa að fara þar í gegn. Upphaflega átti þetta að vera fótboltaferð en í ljósi atburða síðustu daga gæti þetta allt eins orðið golfferð þrátt fyrir afleita forgjöf. Ekkert hefur komið fram i Breskum fjölmiðlum þess efnis að einhverjir klámáhugamenn séu væntanlegir þessa helgi frá Íslandi þó að ég hafi það eftir áreiðanlegum heimildum að a.m.k 2 ferðafélaga minna hafi nánast óvart dottið inn á svo kallaða klámsíðu sem sýndi bæði kynin nakin, saman og í sitt hvoru lagi. Enda bretarnir að mestu komnir úr prjónabrókini og út úr moldarkofunum. Annars sé ég bara fram á viðburðarríka helgi og vona að þjóðarskútan fari ekki á hliðina þó að hluti af áhöfninni skreppi frá.

Hugheilar


Aumingja feministabeljurnar

Nú hriktir í stöðum Íslenskra feninistabeljna því það eru að koma hópur af illræmdum klámhundum og tíkum hingað til lands til þess að ríða Íslenska hestinum og fara í Bláa lónið meðal annars. Svo á víst að þinga aðeins um klámiðnaðinn ásamt því að taka nokkrar myndir í ferðinni eins og hverjir aðrir túristar. Hvað er að þessu? hópurinn á að gista á Sögu og mun Saga því verða af tekjum frá a.m.k einum róttækum feminista vegna málsins. Sennilega nær þó hótelið að lifa þær hremmingar af. Enda skila 175 gistir heldur meiri tekjum. Sennilega verður að setja saman áfallateymi fyrir beljuhópinn. Það væri nú ekki ónýtt að rekast á Jennu á laugarveginum.

Hugheilar  


Kanasleikjur

Það hefur löngum loðað við landann að skríða fyrir kananum. Konurnar riðu á vaðið á sínum tíma og síðan tóku karlarnir við og byrjuðu að sleikja skóna þeirra og styðja þá í vígaverkum víðsvegar um heiminn. Svo launaði kaninn með því að taka okkur í ósmurt á síðasta ári þegar að hann flúði land og skyldi skítinn sinn eftir. Þetta er ekki það eina þú nú keppast blómasalar, hóteleigendur og matargot þessa lands við að klína á okkur einni kanaklessunni en Valentínusardeginum. Veit ekki betur en að konudagurinn sé handan við hornið og þá fá þessar elskur dauðvona blóm  og súru pungana í síðasta sinn þetta árið og kannski smá gælur að auki af því að það er þessi dagur. Annars á maður ekki að þurfa einhvern sérstakan dag til þess að vera góður við sýna heitt elskuðu hvað þá tökudag frá furðulegustu þjóð veraldar. Gaf minni elsku tré á þriðjudaginn sem mun lifa í áratugi sem tákn um eilífa ást okkar.

Hugheilar


Breskar konur með stærstu lungun

Samkvæmt ekki svo mjög áreiðanlegum heimildum (the Sun) hafa breskar konur stærstu brjóst í heimi. Þetta hefur þó ekkert með kynþokka þeirra að gera því að mínu mati eru þær líka jafn óheppnustu konur í heimi útlitslega séð. Þetta var allavegan svona síðast þegar ég tók stöðuna á þessu. Sá þá eina í Grimsby sem leit út fyrir að vera með 4 risabrjóst en svo kom í ljós að hún var bara í svona þröngum bol. Kannski er maður að gera og miklar kröfur í ljósi þess hversu góður maður er vanur. Er að fara til Liverpool í næstu viku til þess að gá hvort ástandið hjá Bresku kvennþjóðinni hefur nokkuð batnað. Er alls ekki bjartsýnn á það en get þó a.m.k kosti búist við að sjá risastór utanáliggjandi lungu í allt of þröngum umbúðum.

Útrýmingarhætta

Þá er framsóknarflokkurinn nánast allur og eru pandabirnir mun lífvænlegri nú um stundir, bara 2 eftir í þingflokknum ef marka má nýjustu kannanir þessir 2 verða því að spila ólsen ólsen næstu 4 árin frá og með maí n.k Þetta kemur svo sem ekki á óvart. Andleysi og moðpokaháttur hafa einkennt flokkinn þetta kjörtímabilið. Fyrir síðustu kosningar ferðuðust framsóknarmenn um á rútu en geta víst látið 3ja dyra Yaris duga þetta vorið. Gæti reyndar notað Guðna Ágústsson með mér í uppistandið sem myndi auka lambkjöt verulega í áhorfendahópnum. Er að spá í að skýra næsta prógram Leitin að síðasta framsóknarmanninum. Hugsa samt til þess með hálfgerðum hryllingi ef vinstri grænir fara að stjórna þeir eru á móti öllu. Finnst reyndar með ólíkindum að einhver þeirra séu gift hélt þau kynnu ekki að segja já. Best að segja ekki neitt um væntanlegt framboð gamlingja og öryrkja gæti flokkast undir kolsvartann húmor og yrði um leið túlkað sem rasismi. Það eru því fáir kostir í stöðunni en ef til vill nógu margir fyrir mig. Helgin fín þrátt fyrir miklar uppistandsannir bæði kvöldin

Hugheilar


Búferlaflutningar

Sæli nú

Þá er kominn tími til þess að mæta í menninguna. Það er reyndar langt síðan að ég ætlaði mér að gera það en loks er það oeðið að veruleika.

Hugheilar


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

« Fyrri síða

Höfundur

Þ.Sigurvin Jónsson
Þ.Sigurvin Jónsson
Hlátur lengir lífið. Það að koma einhverjum til að hlæja er góðverk dagsinns

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband