21.3.2007 | 17:15
Garðyrkjumaður fellur
Grasi garðyrkjumaðurinn minn kom í heimsókn gær með stráinn sín með það voru fagnaðaðarfundir í Norðurgötunni þegar hann staulaðist inn bakveikur með samgrónar tær og vísitölufjölskylduna á eftir í halarófu þar sem að stutt var í matartíma var brugðið á það ráð að láta dominos elda kvöldmatin þetta kvöldið eftir bragðdaufar bökurnar ætlaði Grasi að blása til heimferðar en ákvað samt að tékka á veðrinu, kom í ljós að ekki var talið óhætt að aka Siglufjarðarveg með börn, konu, bónuspoka og tengdamömmubox (tómt að þessu sinni) Því var búið um hópinn í svítunni. Grasa hlekktist á í stiganum niður í kjallarann með þeim afleiðinum að hann rann á hryggnum og bakhlutanum niður stigann ef hann væri samkynhneigður hefði hann örugglega fengið raðfullnægingu en þar sem að hann er all eðlilegur fékk hann skurð á augnbrúnina í fallinu. Talið er að orsök slysins sé sú að hann sér ekki orðið fullkomlega niður á tærnar á sér vegna velmegunar svo var hann að tala líka og á erfitt með að gera tvennt í einu. Grasi fór með sjálfann sig til aðhlynningar á F.S.A þar sem gert var að sárum hans. Þrátt fyrir mikinn blóðmissi var hann að sögn sjónarvotta hinn sprækasti í morgun og ætti að vera kominn heim á Siglufjörð núna. Þessi saga segir okkur að víða leynast hættur fyrir garðyrkjumenn.
Færsluflokkar
Tenglar
Mikilvægt
- Fílsunginn Unginn taka 1
- Dalvík-Reynir gömlu risarnir
- Besta fótboltafélag heims Y.N.W.A
- Litli Fílaprinnsinn Þetta gastu á gamalsaldri
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Fólk
- Gæti fengið allt að 24 ára dóm
- Sláandi lík föður sínum
- Trump Jr. og Bettina Anderson farin að búa saman
- Stórbrotið verk Bjarkar í sýningu hérlendis
- Skoran á Sanchez vakti athygli á innsetningu Trumps
- Þetta lærði Tinna af móður sinni
- Klessti á vegg og átti ekki mjög gott tímabil
- Ýtir undir sögusagnir um skilnað
Athugasemdir
Hvernig gat Grasi garðyrkjumaður verið með vísitölufjölskylduna á eftir sér þar sem hún var jarðsett í kyrrþey fyrir mörgum árum af stjórnvöldum en hún hafði ekki efni á að lifa lengur, þetta hefur greinilega farið fram hjá einhverjum.
Vilborg Eggertsdóttir, 21.3.2007 kl. 20:28
nafnið lifir ætti kannski að vera ríflega meðal fjölskylda
Þ.Sigurvin Jónsson, 21.3.2007 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.